Dagskrá fjölskyldubúða

Dagskrá fjölskyldubúða er fjölbreytt og skemmtileg og alltaf eitthvað spennandi í boði fyrir allan aldur. 

Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.

Dagskrárleiðir 
Fjölskyldubúðum er boðið að taka þátt í dagskrárleiðum kl. 16-18 þrjá daga mótsins:

  • Austurleið – þriðjudagur 21.07
  • Vesturleið – miðvikudagur 22.07
  • Suðurleið – föstudagur 24.07

Í Austurleið og Suðurleið verður opin dagskrá þar sem er hægt að mæta og prófa allskonar dagskrárpósta. Í Vesturleið verður úrval gönguleiða sem er hægt að fara á eigin vegum.

Húllala og húllumhæ 
Í þessari smiðju lærum við að húlla á mitti og höndum og lærum svo skemmtileg trix. Kennslan er löguð að ólíku getustigi þátttakenda svo bæði byrjendur og lengra komin geta skemmt sér konunlega.


Lærðu að djöggla í einum grænum
Í þessari smiðju læra þátttakendur að halda þrem hlutum á lofti. Við lærum fyrst á hægsvífandi klúta og spreytum okkur svo á boltum og hringjum af ýmsum stærðum.

Akróbadakró, förum á flug
Eflaust kannast mörg við það að hafa verið tekin í flugvél sem barn, eða eru foreldrar sem hafa tekið börn í flugvél. Í þessari smiðju lærum við að gera flugvélar af ýmsu tagi.

Útieldun
Gerum einfalt hike brauð yfir opnum eldi.

Leikir
Allskonar leikir fyrir fólk á öllum aldri

Sköpun 
Þæfing, prjón og hekl, litir og litabækur, púsl, spil og allskonar. Smíðum einnig álfahús úr allskonar efnivið sem við förum svo með í gönguferð og komum þeim fyrir í skóginum.

Dagvaka 
Höldum kvöldvöku að degi til og höfum gaman saman.

Uppsprettur 
Ýmsar skemmtilegar uppsprettur verða auglýstar samdægurs á tilkynningatöflum og samfélagsmiðlum.

Norðurljósadísin 
Verður á sveimi um svæðið.

Fleiri fréttir