Fréttabréf frá fjölskyldubúðum

Kæru verðandi íbúar Norðurpóls  

Nú fer allt að verða klárt fyrir mótið sjálfboðaliðar, mótsstjórn og starfsfólk Hamra vinna baki brotnu við snyrta og hafa allt klárt svo allt megi ganga sem best.  

Útbúnaðarlisti 

Það er gott að gera útbúnaðarlista svo ekkert gleymist.  

Við viljum minna fólk á að taka með sér drykkjarílát þar sem boðið verður upp á kaffi á Norðurpólnum. Við munum svo öll hjálpast að svo það sé alltaf heitt á könnunni og snyrtilegt í kringum okkur. Þá væri gott að taka með sér verkfæri, t.d. hamar, skrúfjárn og fleira, sem myndi nýtast í minniháttar smíðavinnu. Prjónar, nálar, heklunálar og textílskæri væri einnig tilvalið að taka með sér. Munum svo að merkja allt svo ekkert týnist.  

Áfengi, reykingar og nikótín 

Reykingar og nikótín notkun eru með öllu óheimil á mótsvæðinu. Neysla áfengis og vímuefna er með öllu óheimil á meðan á mótinu stendur og varðar brottrekstri án undantekninga. 

Með sól í hjarta 

Eru ekki öll búin að læra „með sól í hjarta” og einnig fallega söngin um Kjarnaskóg sem Hrefna Hjálmars ætlar að syngja með okkur í gönguferðinni. Textann og nóturnar af því lagi má finna á Facebooksíðu fjölskyldubúða Fjölskyldubúðir á Landsmóti | Facebook 

Allt um mótið 

Á heimasíðu Landsmóts má finna allar upplýsingar um mótið, kort af svæðinu og dagskrá fjölskyldubúða svo eitthvað sé nefnt. Ef spurningar vakna má senda póst á viljurnar@skatarnir.is eða landsmot@skatarnir.is 

Skátalögin

Skáti er glaðvær 

Skáti er traustur 

Skáti er náttúruvinur 

Skáti er tilitsamur 

Skáti er heiðarlegur 

Skáti er samvinnufús 

Skáti er nýtinn 

Skáti er réttsýnn 

Skáti er sjálfstæður 

Ef við vöndum okkur við að halda skátalögin í heiðri þá verður þetta alveg dásamlegt mót á því er eingin vafi.   

Sólskinskveðjur frá Norðurpól  
Viljurnar 

Fleiri fréttir