Skip to content
Landsmótskáta 2024
  • Um mótið
    • Þema
      • Ólíkir Heimar
      • Verndargripurinn
    • Mótsreglur
    • Dagskrá
    • Mótssvæðið
    • Mótsstjórn
    • Upplýsingapóstar
  • Taktu þátt!
    • Skráning
    • Sjálfboðaliðar
    • Fjölskyldubúðir
  • English
Menu
  • Um mótið
    • Þema
      • Ólíkir Heimar
      • Verndargripurinn
    • Mótsreglur
    • Dagskrá
    • Mótssvæðið
    • Mótsstjórn
    • Upplýsingapóstar
  • Taktu þátt!
    • Skráning
    • Sjálfboðaliðar
    • Fjölskyldubúðir
  • English

Mótsreglur

  • Skátalögin og Æskulýðsslög eru lög mótsins.
  • Mótsgestum ber að vera á mótssvæðinu meðan á móti stendur, nema ef um skipulagða dagskrá á vegum mótsins er að ræða. Sérstaka heimild mótsstjórnar þarf til að yfirgefa mótssvæðið.
  • Alger kyrrð skal ríkja á mótssvæðinu eftir 11 á kvöldin til 8 á morgnana. Öll skulu vera komin í sína tjaldbúð hálfri klukkustund eftir að formlegri dagskrá lýkur.
  • Reykingar og nikótín notkun eru með öllu óheimil.
  • Neysla áfengis eða vímuefna er með öllu óheimil á mótssvæðinu og varðar brottrekstri án undantekninga.
  • Við setningu, slit og aðrar hátíðlegar athafnir skulu öll vera í skátabúning. Frá mótssetningu til mótsslita skulu öll að lágmarki bera mótsklút.
  • Eld má ekki kveikja nema á þar til gerðum eldstæðum.
  • Umferð farartækja um mótssvæðið er óheimil nema með leyfi mótsstjórnar.
  • Mótsgestir eru bundin af reglum mótsins frá því þau koma á mótssvæðið og þar til þau yfirgefa það að móti loknu.
  • Það er á ábyrgð fararstjóra að sjá til þess að reglur þessar séu haldnar og að mótsgestir fari í einu og öllu eftir fyrirmælum mótsstjórnar.
Landsmótskáta 2024

Landsmót skáta 2024

All rights reserved