Á Landsmóti verður Skjólið starfrækt. Við viljum gera það vel og óskum því eftir sjálfboðaliðum sem eru tilbúin að sinna þessu verkefni með okkur. Við óskum eftir fólki með menntun og/eða reynslu sem nýtist í Skjólinu.
Hvað er Skjólið
Skjólið er athvarf og hvíldarstaður á skátamótum, fyrir börn, foringja og sjálfboðaliða sem þurfa á því að halda. Skjólið nýtist t.d. börnum og sjálfboðaliðum sem þurfa hvíld frá áreiti, slaka á og núllstilla taugakerfið. Á skátamótum eru skynsegin einstaklingar berskjaldaðri fyrir skynjunarofhleðslu en Skjólið getur gert gæfumuninn til þess að skátarnir geti haldið dvölinni áfram í stað þess að brenna út eða gefast upp og fara heim. Skjólið annast einnig listening ear á mótinu, fyrir börn og fullorðna. Þangað geta skátar leitað sem þurfa að ræða atvik, áhyggjur eða annað sem liggur þeim á hjarta.
Fararstjórar og foringjar geta einnig leitað til Skjólsins fyrir ráðgjöf sem varðar hegðunar- eða samskiptaárekstra á mótinu. Sambúð í viku er þroskandi fyrir hópa en getur einnig reynt á og allskonar komið upp í samskiptum. Þegar skátarnir eru þreyttir, eins og á til að gerast á skátamótum, magnast tilfinningarnar upp og þráðurinn styttist.
Við leitum að sjálfboðaliðum sem geta ráðlagt foringjum í fjölbreyttum og krefjandi félagslegum aðstæðum. Við hvetjum sérstaklega þroskaþjálfa, sérkennara og aðra sem hafa starfað náið með börnum með sérþarfir til að sækja um sem og önnur áhugasöm.
Hér má nálgast umsóknareyðublað um sjálfboðastarf í Skjólinu, en sjálfboðaliðarnir verða valdir úr hópi umsækjanda eftir menntun, hæfni og reynslu.

