Fjölskyldubúðir

20.-26. júlí

Á Landsmóti skáta sem haldið verður að Hömrum 20.-26. júlí 2026 verða fjölskyldubúðir starfræktar eins og tíðkast á Landsmóti. Fjölskyldubúðirnar gefa fjölskyldum skátanna, gildisskátum og öðrum gestum kost á að taka þátt í mótinu og kynnast skátastarfinu með yngri börnum sínum. Þema mótsins er “Á norðurslóð” og munu fjölskyldubúðirnar því bera nafnið Norðurpóllinn.

Aðstaða fjölskyldubúða

Norðurpóllinn verður staðsettur á flötum 3-9 þar sem gott aðgengi er að stórum flötum og salernum. Í hjarta fjölskyldubúða verður  samkomutjald þar sem má finna upplýsingar um tækifæri í dagskrá og heitt á könnunni. 

Þeir hópar og skátafélög sem óska eftir að dvelja saman og gera sína eigin tjaldbúð þurfa að láta vita með góðum fyrirvara um fjölda eininga. Úthlutun svæða verður í höndum starfsfólks tjaldsvæðisins að Hömrum, sem mun merkja svæði fyrir þau félög sem hafa samband.

Þessi svæðaskipting er þó eingöngu til viðmiðunar og þæginda fyrir tjaldgestina en ekki hægt að líta á skiptinguna þannig að viðkomandi blettur sé frátekinn fyrir ákveðið félag/hóp.

Dagskrá Norðurpólsins

Í samkomutjaldi Norðurpólsins verður dagskrá alla mótsdagana í samræmi við dagskrá mótsins. Þangað geta foreldrar komið með börnum sínum í skapandi smiðjur og á aðra viðburði sem boðið verður upp á. Hefð er fyrir því að fara í gönguferðir um nágrennið, halda kvöldvöku og taka þátt í hluta af dagskrá mótsins. Vinsamlega athugið að ekki verður boðið upp á barnapössun á Norðurpólnum, ætlast er til að börn séu á ábyrgð forsjáraðila. Á Norðurpólnum verður heitt á könnunni ásamt heitu vatni fyrir te og kakó. Hver og einn þarf að koma með sinn eigin bolla undir drykkina.

Umsjón dagskrár í fjölskyldubúðum

Dagskrá Norðurpólsins er í mótun og verður öllum tillögum og óskum tekið fagnandi. 

Hafa má samband við Viljurnar í gegnum netfangið viljurnar@skatarnir.is  eða á Facebook hópnum Fjölskyldubúðir á Landsmóti

Foringjar og skátafélög

Þeir hópar og skátafélög sem óska eftir að dvelja saman og gera sína eigin tjaldbúð þurfa að láta vita á netfangið fjolskyldan@hamrar.is með góðum fyrirvara um fjölda eininga/tjalda. Úthlutun svæða verður í höndum starfsfólks tjaldsvæðisins að Hömrum, sem mun merkja svæði fyrir þau félög sem hafa samband.

Þessi svæðaskipting er þó eingöngu til viðmiðunar og þæginda fyrir tjaldgestina en ekki er hægt að líta á skiptinguna þannig að viðkomandi blettur sé frátekinn fyrir ákveðið félag/hóp.

Foringjar sem kjósa að gista í fjölskyldubúðum greiða ekki sérstaklega fyrir það séu þeir skráðir foringjar hjá félagi á mótinu.

Mjög mikilvægt er að öll sem gista á mótinu séu skráð. Þau sem ekki eru skráð sem foringjar eða þátttakendur á mótið skulu skráð í fjölskyldubúðir.

Gisting á fjölskyldubúðasvæði fyrir/eftir mót

Svæðið er opið sem almennt tjaldsvæði fram að móti og þannig geta gestir alltaf dvalið fyrir og eftir mótið á svæðinu. Við munum reyna að stýra fólki á þau svæði sem hugsuð eru fyrir fjöldskyldubúðir strax við komu.

Verðskrá

Boðið verður upp á afslátt í fjölskyldubúðir með forpöntunum og greiðslum. Aðeins er um takmarkað magn á forpöntuðum plássum að ræða og gildir fyrstur kemur fyrstur fær. Með forpöntunum er ekki verið að taka frá ákveðin stæði heldur bara að veita afslátt á dvalar- og dagskrárgjaldinu. Eftir sem áður gildir fyrstur kemur fyrstur fær varðandi pláss á staðnum. Það á einnig um varðandi aðgang að rafmagni fyrir þá sem það þurfa og því er ekki hægt að forpanta aðgang að rafmagni.

Vakin er athygli á því að meðferð nikótíns, áfengis og annarra vímuefna er með öllu óheimil í fjölskyldubúðum eins og á Landsmóti skáta.

Mótshaldarar munu takmarka umferð um svæðið  og óska eftir því að bílar verði geymdir utan þess. Öðrum en gestum Landsmóts verður ekki hleypt inn á svæðið nema á heimsóknardaginn sem verður laugardaginn 25. júlí.

Mótið stendur í 6 daga frá mánudegi til sunnudags. 

Ef pantað er í forsölu er veittur afsláttur. 

Á staðnum

Forpöntun vikupassi

Fyrir 1. maí 2026 

Fjölskyldubúðir, einkenni og dagskrá. 
Eitt verð fyrir vikuna, ekki verða seldir dagpassar. Fyrir 10 – 99 ára. 

8.500 kr  á mann

7.500 kr á mann

Tjaldsvæði fyrir 18 ára og eldri 

2.500 kr nóttin 

9.500 kr fyrir 6 daga 

Börn 10 (2016)  – 17 ára (2008)
(í fylgd með fullorðnum). 

800 kr nóttin 

3.000 kr fyrir 6 daga

Börn yngri en 10 ára dvelja frítt í fjölskyldubúðum.

  

Einingaverð fyrir tjöld eða ferðahýsi (innifalið er gistináttaskattur)

500 kr nóttin

3.000 kr fyrir 6 daga 

Rafmagn fyrir sólarhringinn.
Vakin er athygli á því að ekki má hlaða rafmagnsbíla á tjaldsvæðinu. 

1.500 kr 

9.000 kr fyrir 6 daga Aðeins selt á staðnum