Vesturleið / Due West

Á Vesturleið fá skátarnir að kanna landslagið í kringum Hamra, Kjarnaskóg og Akureyri í gönguferðum, náttúruskoðun og fjölbreyttum útivistaáskorunum. Skátarnir kanna skógarstíga, ganga upp að skátaskálum, skoða Naustaborgir, heimsækja Fálkafell og Gamla, takast á við lengri leiðir í átt að Súlum og Bónda eða uppgötva áhugaverða staði eins og Flugsafnið og Jólahúsið. Á leiðinni geta þau fylgst með fuglalífi, leyst verkefni, lært um náttúruna, notið útsýnis yfir Eyjafjörð og kynnst sögu og hefðum skátastarfs á Akureyri. Vesturleið býður skátunum að upplifa náttúruna, stækka sjóndeildarhringinn, uppgötva nýja staði og upplifa hvernig göngur, hjólreiðar og samvera gera umhverfi mótsins að einu stóru ævintýri.

Þar sem gönguleiðirnar eru mis langar og krefjandi gætu flokkar þurft að leggja af stað fyrir hefðbundin dagskrártíma eða komið heim í tjaldbúð eftir hann. Hefðbundin dagskrártími er frá kl. 13-16. Skátarnir þurfa að taka með sér nesti fyrir daginn. 

 

Due West is a program area for scouts and guides who want to explore the landscape around Hamrar, Kjarnaskógur and Akureyri through hikes, nature discovery and outdoor challenges. Scouts can follow forest paths, climb towards scout cabins, explore Naustaborgir, visit Fálkafell and Gamli, take on longer routes towards Súlur and Bóndi, or discover local landmarks such as the Aviation Museum and the Christmas House. Along the way, they may spot birds, solve tasks, learn about the natural surroundings, enjoy views over Eyjafjörður and experience the history and traditions of Akureyri scouting. Due West invites scouts to move through the landscape, challenge themselves at their own level, discover new places and experience how exploring together can turn the area around the jamboree into one big adventure.

As the excursions vary in length and difficulty, some patrols may need to depart before 1:00 PM and return after 4:00 PM. Participants should bring a packed snack and drinks for this activity.  

litlumerkin-07

Fálka- og Dróttskátar

Fuglastríðið í Kjarnaskógi! Lærðu allt um fuglana sem búa í skóginum í kringum Hamra. Hver nær að koma auga á flesta fugla og nafngreina þá?

 

Suitable for patrols aged 10-12 and 13-15

Learn all about the birds living in the forest around Hamrar. Who can spot and name the most birds?

 

Drótt- og Rekkaskátar

Skátaskálinn Fálkafell hefur verið til í einhverri mynd nánast eins lengi og elstu menn muna. Þar hafa skátar á Akureyri um árabil lært allt sem vert er að vita um reykjarlykt, blauta vettlinga, brunnin hafragraut og hrotur skátasystkina. Gönguleiðin frá Hömrum upp í Fálkafell liggur í upphafi eftir göngustíg um Naustaborgir. Þegar norðar dregur má finna slóða sem liggur upp í móti og skilar okkur að lokum inn á grófan akstursslóða sem liggur að Fálkafelli. Þaðan er hægt að fylgja merktri gönguleið yfir í skátaskálann Gamla sem heitir svo eftir Tryggva Þorsteinssyni. Frá Gamla liggur leiðin niður í átt að mótsvæðinu eftir stikaðri gönguleið. Þessi gönguleið hentar fálkaskátum og eldri.

Tími: 3 klst.

Vegalengd: 5.2 km.

Suitable for patrols aged 13-15 and 16-18

The Fálkafell Scout cabin has existed in one form or another for almost as long as anyone can remember. For many years, Scouts in Akureyri have learned there everything worth knowing about the smell of smoke, wet mittens, burnt porridge, and the snoring of fellow Scouts. The hiking route from Hamrar up to Fálkafell begins on a walking path through Naustaborgir. As you continue north, you can find a track leading uphill, which eventually brings you onto a rough vehicle track towards Fálkafell. From there, you can follow a marked hiking trail over to the Scout cabin Gamli, named after Tryggvi Þorsteinsson. From Gamli, the route leads back down towards the campsite along a marked trail.

Time: 3 hours.

Travel distance: 5.2 km.

Rekkaskátar

Lagt af stað um kvöld og gist í skátaskálanum Fálkafelli. Að morgni næsta dags er lagt af stað á Súlur og báðir tindar fjallsins sigraðir; Fremri-Súlur og Syðri-Súlur. Rómantík og rökkurró í skátaskála.

Tími: Yfir nótt

Vegalengd: 18 km.

Suitable for patrols aged 16-18

Set off in the evening  and spend the night at the Fálkafell Scout cabin. The next morning, head up to Súlur and conquer both peaks: Fremri-Súlur and Syðri-Súlur. Enjoy the twilight and calm in a Scout cabin.

Time: Over Night

Travel Distance: 18 km.

Rekkaskátar

Gengið frá Hömrum upp á Súlumýrar og þaðan upp á Ytri-Súlu og svo eftir hryggnum suður að Bónda. Gengin sama leið til baka eða farið niður að Kristnesi og endað í sundi á Hrafnagili.

Tími: 8 klst.

Vegalengd: 28 km.

Suitable for patrols aged 16-18

Walk from Hamrar up to Súlumýrar and from there up to Ytri-Súla, then follow the ridge south to Bóndi. Return by the same route, or descend towards Kristnes and finish with a swim at Hrafnagil.

Tími: 8 hours.

Vegalengd: 28 km.

Drótt- og Rekkaskátar

Súlur gnæfa yfir Akureyri og setja mikinn svip á bæinn. Frá Hömrum liggur stikuð gönguleið yfir Súlumýrar og alla leið upp á topp. Leiðin er talsvert brött á köflum og getur verið krefjandi en útsýnið á toppnum er algjörlega þess virði, Eyjafjörðurinn blasir við og drottning íslenskra fjalla Herðubreið er sjáanleg í fjarska. Gönguleiðin hentar dróttskátum og eldri.

Tími: 5 klst.

Vegalengd: 16 km.

Suitable for patrols aged 13-15 and 16-18

Súlur towers above Akureyri and is a defining feature of the town’s landscape. From Hamrar, a marked hiking trail leads across Súlumýrar and all the way to the summit. The route is quite steep in places and can be challenging, but the view from the top is absolutely worth it. Eyjafjörður stretches out below, and Herðubreið, the queen of Icelandic mountains, can be seen in the distance. This hike is suitable for Venture Scouts and older.

Time: 5 hours

Travel Distance: 16 km.

Fálkaskátar

Gengið eftir trimmbrautinni norður í Naustaborgir, þar eru ótal stígar, fjölbreytt gróðurfar og mikið fuglalíf.

Suitable for patrols aged 13-18

Walk north along the trail to Naustaborgir, where you will find countless paths, varied vegetation and rich birdlife.

Drótt- og Rekkaskátar

Gengið niður í gegnum Kjarnaskóg og svo eftir göngustíg sem liggur suður að Hrafnagili. Hægt er að stoppa í jólahúsinu og á Kristnesi.

Tími: 6 klst.

Vegalengd: 16 km.

Suitable for patrols aged 13-15 and 16-18

Walk down through Kjarnaskógur, then follow the walking path south towards Hrafnagil. You can stop at the Christmas House and at Kristnes along the way.

Time: 6 hours.

Travel Distance: 16 km.

Fálka-, Drótt- og Rekkaskátar

Kjarnaskógur hefur um árabil verið eitt helsta útivistarsvæði Akureyringa og nærsveitunga. Þar er að finna margar gönguleiðir og stíga en einn stendur hinum framar hinn svokallaði Stóri hringur. Þar hafa ófáir kílómetrar verið skokkaðir og tæpast eru þeir færri kílómetrarnir sem hafa verið skíðaðir á þessum stíg en Kjarnaskógur er sannkölluð gönguskíðaparadís að vetri. Í þessari ferð er genginn Stóri hringurinn í Kjarnaskógi og unnin létt verkefni um skóginn á leiðinni. Þessi gönguleið hentar öllum aldursbilum

Tími: 2 klst.

Vegalengd: 5.5 km.

Suitable for patrols of ages 10-12, 13-15 and 16-18

Kjarnaskógur has long been one of the main outdoor areas for people in Akureyri and the surrounding communities. It has many walking routes and paths, but one stands out above the rest: the so-called Big Loop. Countless kilometers have been run there, and probably just as many have been skied along this trail, as Kjarnaskógur is a true cross-country skiing paradise in winter. On this trip, you will walk the Big Loop in Kjarnaskógur and complete some light tasks about the forest along the way. This walking route is suitable for all age groups.

Time: 2 hours

Travel Distance: 5.5 km.

Fálka- og Dróttskátar

Naustaborgirnar er gullfallegt útivistarsvæði á milli Akureyrar og Hamra. Klappir, skógur, tjarnir og fjölbreytt náttúra þar sem ýmislegt er hægt að finna sér að gera. Göngutúr um svæðið með þrautum sem þarf að leysa.

 

Suitable for patrols aged 10-12 and 13-15

Naustaborgir is a beautiful outdoor area between Akureyri and Hamrar, with rocky outcrops, forest, ponds, and varied nature. There is plenty to discover and do along the way. This walk takes you around the area with challenges to solve as you go.

Drótt- og Rekkaskátar

ATH: Skátarnir þurfa að koma með eigin hjól

Ein skemmtilegasta fjallahjólaleið landsins liggur ofan af klöppunum ofan við Hamra, í zik-zak niður í gegnum skóg suður af þeim og svo eftir sérstakri fjallahjólabraut í gegnum Kjarnaskóg. Hægt er að hjóla (eða leiða hjólin) upp í Gamla og láta sig svo flakka af stað á hraða að eigin vali.

Tími: 4-5 klst.

Vegalengd: 8 km.

Suitable for patrols aged 13-15 and 16-18

NOTE: This requires the scouts/guides to bring their own bikes

One of the most enjoyable mountain biking trails in the country starts on the rocky outcrops above Hamrar, winding its way down in a zigzag through the forest to the south, and then continues along a dedicated mountain bike trail through Kjarnaskógur. Riders can cycle (or push their bikes) up to Gamli and then set off downhill at whatever speed suits them.

Time: 4-5 hours.

Travel Distance: 8 km.

Fálka-, Drótt- og Rekkaskátar

Hin klassíska gönguleið Akureyskra skáta. Gengið frá Hömrum upp í Gamla og ofan á klöppunum til norðurs í Fálkafell. Frábært útsýni á leiðinni. Hægt er að ganga beint á ská niður úr Fálkafelli og koma niður í Naustaborgir, þaðan sem er gengið til suðurs á Hamra aftur.

Tími: 3 klst.

Vegalengd: 7 km.

Suitable for patrols aged 10-12, 13-15 and 16-18

The classic hiking route of scouts from Akureyri. Walk from Hamrar up to Gamli, then north along the rocky ridge to Fálkafell. There are great views along the way. From Fálkafell, you can walk diagonally down the slope to Naustaborgir, then head south back to Hamrar.

Time: 3 hours.

Travel Distance: 7 km.

Fálka-, Drótt- og Rekkaskátar

Það er stutt labb frá Hömrum og niður á Akureyrarflugvölll. Þar er Flugsafn Íslands, sem er eitt af skemmtilegri söfnum landsins með fullt af hlutum tengdum flugi að ógleymdum öllum flugvélunum, en hægt að fara í borð um margar þeirra.

Tími: 3 klst.

Vegalengd: 4 km.

Suitable for patrols aged 10-12, 13-15 and 16-18

It is a short walk from Hamrar down to Akureyri Airport. There you will find the Icelandic Aviation Museum, one of the most interesting museums in the country, with lots of items related to aviation, not to mention all the aircraft. You can even go on board many of them.

Time: 3 hours

Travel Distance: 4 km.

Fáka- og Dróttskátar

Gengið upp í Gamla gegnum Kaffiklaufina, þaðan er farið upp dalinn, með viðkomu hjá Kjarnaseli, sem eru fallegar rústir. Uppi á Súlumýrum er gengið norður að Steinmönnum, þar er besta útsýni yfir Eyjafjörðinn sem völ er á. Farið svo sömu leið til baka.

Tími: 3 klst.

Vegalengd: 6.5 km.

Suitable for patrols aged 10-12 and 13-15

Hike up to Gamli through Kaffiklaufin. From there, continue up the valley, with a stop at Kjarnasel, a beautiful set of ruins. Once up on Súlumýrar, walk north to Steinmenn, where you’ll find one of the best views over Eyjafjörður. Return by the same route.

Time: 3 hours.

Travel Distance: 6.5 km.

Fálka-, Drótt- og Rekkaskátar

Frá Hömrum liggur stikuð gönguleið að Gamla, einum af skátaskálum Skátafélagsins Klakks. Leiðin liggur upp fyrir hamrabeltin sem gnæfa yfir útilífsmiðstöðinni, en þaðan er gott útsýni yfir mótssvæðið og tilvalið að reyna að finna tjaldið sitt innan um öll hin. Leiðin liggur áfram í gegn um þéttan greniskóginn þar fyrir ofan sem sprottið hefur á miklum hraða undanfarin ár. Þegar komið er í Gamla er hægt að virða fyrir sér stóran hluta Akureyrar og útsýnið út Eyjafjörðinn er stórfenglegt. Þessi gönguleið hentar öllum aldursbilum.

Tími: 3 klst.

Vegalengd: 6 km.

Suitable for patrol aged 10-12, 13-15 and 16-18

From Hamrar, a marked hiking trail leads to Gamli, one of Klakkur Scout Group’s cabins. The trail climbs above the cliffs overlooking the outdoor centre, with great views across the campsite. See if you can spot your own tent among all the others! From there, the route continues through the dense spruce forest above Hamrar, which has grown rapidly in recent years. At Gamli, you’ll be rewarded with views over much of Akureyri and the stunning Eyjafjörður fjord. This hike is suitable for all age groups.

Time: 3 hours

Travel Distance: 6 km.