Austurleið / Due East

Á Austurleið taka skátarnir þátt í kraftmikilli og ævintýralegri þrautadagskrá þar sem reynir á samvinnu, hugrekki, útsjónarsemi og þrautseigju. Í gegnum drulluleiki, vatnaáskoranir, súrringar, flekagerð og fleira þurfa skátarnir að vinna saman, styðja hvert annað og efla samvinnuna. Skátarnir munu takast á við að leiðbeina hvor öðrum í gegnum taugaþrautabraut, smíða fleka sem vonandi mun ekki sökkva, læra að lesa kort og keppa í útileikjum. Austurleið býður skátunum upp á að stíga út fyrir þægindarammann, tengjast náttúrunni og upplifa gleðina sem fylgir því að sigrast á áskorunum saman sem flokkur.

Due East is an energetic and adventurous programme area where scouts and guides take on a wide range of fun and challenging activities that test teamwork, courage, creativity and perseverance. Through muddy games, water challenges, pioneering, raft building and more, the scouts and guides will need to work together, think creatively and support one another. Whether they are guiding a blindfolded teammate through a nerve maze, building something that floats, reading the landscape with a map or competing in outdoor games, Due East invites scouts to step outside their comfort zone, connect with nature and experience the joy of overcoming challenges as a team.

litlumerkin-06
Fótbolti spilaður í drullu, venjulegar reglur gilda.
Football played in the mud, normal rules apply.

Drótt – og rekkaskátar

Flokkar keppa um að súrra valslöngvur til að varpa vatnsblöðrum í hvort annað.

Suitable for patrols aged 13-15 and 16-18

Groups compete to pioneer Catapults to fling Water Balloons at the other team.
Spilið risa borðspil. Þið eruð peðin og fáið þannig að upplifa það sem þið þekkið frá öðru sjónarhorni.

Play a giant boardgame. You are the pieces and get to experience what you know from a different angle.

Lærið um skylmingar og keppið í stuttum einvígum eða liðaleikjum. Farið verður yfir hvað vopn geta verið skaðleg ef notuð á rangan hátt.

Learn and compete with swords and shields in shorts duels or in a team. You will also learn how dangerous weapons can be when used the wrong way.
Búðu til þitt eigið geislasverð og notaðu á skrautlegan og hæfan hátt í gegnum æfingar og leiki.
Create your own lightsaber and then learn to use them in creative and skilled ways through practise and games.

Flokkarnir fá að spreyta sig í ýmsum víkinga leikjum. Breytilegt eftir fjölda og þátttakendum.

Get to experience a variety of viking games. Games differ between group size and participant age.

 

Byrjið á að binda þrautabrautina ykkar sjálf þannig verður hún eins auðveld eða erfið og þið viljið. Svo þurfa skátar að komast í gegnum brautina með bundið fyrir augun og hafa bara leiðbeiningar frá öðrum skáta úr flokknum á hinum enda brautarinnar.
Scouts and guides will have to tie their own nerve maze in the trees and so it will be as easy or hard as they tie it, then the scouts will need to attempt to go through it blindfolded with only the instructions of a teammate on the other side of the course.

Fálka- og dróttskátar

Skátarnir fá að klifra og síga í Hamrana með öryggisbúnaði undir leiðsögn.

 

Suitable for patrols aged 10-12 and 13-15

Climbing and Abseiling in the cliffs with security and under guidance.

Drótt- og rekkaskátar

Keppið í ýmsum lazertag leikjum, á afmörkuðu svæði, sem þjálfar samvinnu og skjót viðbrögð.

Suitable for patrols aged 13-15 and 16-18

Compete in a variety of laser tag game modes in a designated area, improving coordination and sharpening fast reflexes
Skátar fá að æfa sig að kasta öxi í mark á öruggi svæði undir leiðsögn og með skýrum reglum.
Practise throwing axes at a target in a safe area under guidance and clear rules.
Skjótið úr boga á mark á öruggu svæði undir leiðsögn.
Practice archery in a safe environment under supervision and clear safety rules.
Keppið í boðhlaupi og leysið mismunandi skátaþrautir áður en næsti tekur við.
Compete in a relay race, solving a variety of scouting challenges before the next one takes over.
Skemmtu þér í vatnasafarí, munu öll komast í gegn þurr eða gegnumblaut?
Have fun in the Water Safari. Will you get through dry or end up drenched?

Drótt- og Rekkaskátar

Spilið frisbígolf á vellinum á Hömrum. Keppið saman í litlum liðum.

Suitable for patrols aged 13-15 and 16-18

Enjoy the local frisbee golf course, compete together in small groups.

Lærið að lesa kort, finna áttir og skilja tákn og hæðarlínur. Æfið ykkur að rata og tengja kort við raunverulegt umhverfi.

Learn to read maps, learn your heading, understand signs and reading heightmarkers. Learn to know your way and and connect maps to real world surroundings.
Slakaðu á og njóttu þess að púsla eða spila í rólegheitum.
Calm down and enjoy puzzles and boardgames in a cozy environment.

Rekkaskátar

Lærið hvernig á að tryggja hvort annað fyrir klifur, hvaða hættum þið eigið að passa ykkur á og læra hvort svæði er hæft til að klifra, ásamt fleiru.

Suitable for patrols aged 16-18

Learn how to secure your fellow scouts for climbing, what dangers you should be careful about and learning how to check if an area is safe to climb.
Taktu þátt í vatnsbyssuslag. Hafið gaman og njótið í góðu veðri, bonandi.
Take part in an exciting water gun fight, have fun, and enjoy the, hopefully, good weather. 

 

Smíðið einfaldan fleka úr tiltæku efni, notið hugmyndaflugið til að gera fleka sem sekkur ekki. 
Build  a simple raft from available materials. Use your imagination to make a raft that doesn’t sink.