Sjálfboðaliðar

Landsmót skáta auglýsir eftir sjálfboðaliðum. Sjálboðaliðar og IST (Alþjóðlegir sjálfboðaliðar) á mótinu sinna fjölbreyttum verkefnum, svo sem öryggisgæslu, eldhússtörfum og dagskrárstjórnun. Hlutverkin eru fjölbreytt og reynt verður að finna hlutverk sem henta hverjum og einum. 

Allir sjálfboðaliðar mótsins þurfa að mæta laugardaginn 18. júlí 2026, þá fá þau þjálfun og taka þátt í undirbúningi og uppsetningu mótsins. Sjálfboðastörfum lýkur mánudaginn 27. júlí 2026. Sjálfboðaliðar á mótinu gegna lykilhlutverki í að tryggja að mótið gangi vel og að þátttakendur upplifi öruggt, skipulagt og skemmtilegt mót. Sjálfboðaliðar á mótinu kynnast öðrum skátum og eru þátttakendur í alþjóðlegum teymum. 

Við hlökkum til að taka á móti öflugum og áhugasömum sjálfboðaliðum sem vilja leggja sitt af mörkum og skapa ógleymanlega upplifun fyrir þátttakendur. Með góðri samvinnu, jákvæðu hugarfari og kraftmikilli þátttöku gerum við Landsmót 2026 að einstöku og eftirminnilegu ævintýri.

Hlutverkalýsingar:

Matarúthlutun

Hlutverkið snýst um að aðstoða í matarúthlutun mótsins, fylla á hillur og kæla og vera til taks fyrir félögin þegar þau mæta í matarúthlutun.

Starfsmannaeldhús

Aðstoð í starfsmannaeldhúsinu við t.d. að saxa, vaska upp, ganga frá, hlaupa fyrir kokkinn og stýra borðhaldinu í matsalnum.

Sjúkragæsla

Ert þú með heilbrigðismenntun sem gæti nýst í sjúkragæsluna? Í sjúkragæslu þarf að manna vaktir allan sólarhringinn yfir allt mótið.

Öryggisgæsla

Hlutverkið snýst um að gera mótssvæðið eins öruggt og mögulegt er með því að hafa eftirlit með því hverjir fá aðgang að svæðinu o.fl. Þú þarft að vera tilbúið/tilbúin(n) að stíga inn í aðstæður ef þess er þörf.

Tjaldbúð og tæknimál

Ert þú þúsundþjalasmiður, tilbúin að stökkva í öll verk? Kanntu að tjalda stórtjöldum? Ertu reddari? Kanntu á rafmagn? Það vantar fólk í alls kyns verkefni.

Kaffihús í Grænu hlöðunni

Hefur þig alltaf langað til að vinna á kaffihúsi en aldrei fengið tækifæri til þess? Hér er kjörið tækifæri til að taka vaktir í kaffihúsinu  á kvöldin og koma að skipulagi á kvölddagskrá fyrir gesti mótsins sem eru 18 ára og eldri og bjóða upp á ýmislegt góðgæti til sölu.

Kynningamál

Kynningarteymi óskar eftir fólki sem hefur þekkingu á samfélagsmiðlum og langar að búa til skemmtilegt Landsmótsefni á meðan á mótinu stendur.

Þá vantar einnig sjálfboðaliða til að sækja mótsblaðið á Akureyri þriðjudag til sunnudags, svo hægt sé að koma því í dreifingu á mótssvæðinu.

Upplýsingatjald

Elskar þú skipulag? Við líka og þess vegna viljum við hafa skipulagt og lausnamiðað fólk í upplýsingatjaldinu. Þangað geta skátar leitað ef þau finna ekki dagskrárstöð, týna einhverju, vantar upplýsingar um útvarp, mótsblað, matarúthlutun eða hvað sem er.

Skógardagskrá

Í skógardagskráni er fjölbreytt dagskrá. Óskað er eftir fólki sem hefur áhuga á tálgun, súrringum, útieldun og gróðursetningum. Hefur þú þekkingu á líffræðinni í skóginum og vilt fræða skátana og virkja í rannsóknum eða handverki?

Göngudagskrá

Mikilvægt er að halda utan um skráningar á því hvaða hópar fara í gönguferðir. Hlutverk sjálfboðaliða í göngudagskrá er að halda utan um skráningar, afhenda hópunum kort með leiðum o.fl. Foringjar yngstu hópanna fara með þeim í gönguna.

Akureyrardagskrá

Í Akureyrardagskránni þurfa sjálfboðaliðar að vera til staðar á ákveðnum stöðum sem skátarnir eiga að stoppa á t.d. að aðstoða í Siglingaklúbbnum Nökkva.

Þrauta- og metadagskrá

Þrauta- og meta dagskráin er fjölbreytt. Hlutverk sjálfboðaliða á svæðinu er að fylgjast með skátunum og stýra keppnum milli hópa og virkja öll til þátttöku. Að setja upp póstana og pakka þeim saman að dagskrá lokinni.

Handverk

Ert þú snillingur í höndunum? Þekkir þú vel tæknina við leðurvinnu, smíðavinnu, saumaskap eða annað? Okkur vantar fólk í ýmis verkefni.

Kvölddagskrá og dagskrá á sviði

Kvölddagskráin verður fjölbreytt og skemmtileg. Vilt þú aðstoða við uppsetningu, útfærslu eða annað í kvölddagskrá? Viltu vera kynnir á mótinu? Hefur þú áhuga að koma að undirbúningi á setningu og slitum? Langar þig að leiða fjöldasöng? Ertu með frábæra hugmynd að næturleik fyrir 1000 skáta?

Fjölskyldubúðir

Langar þig að sjá um smiðju í fjölskyldubúðum, leiða gönguferð eða halda skemmtiatriði? Það vantar fólk í ýmis hlutverk í fjölskyldubúðum en skátahópurinn Viljurnar sjá um skipulag fjölskyldubúða með aðstoð mótsstjórnar.