Norðurleið / Due North
Á Norðurleið njótum við nálægðarinnar við Akureyri, þar sem spennandi valverkefni verða í boði og öll ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Dagurinn skiptist í tvö dagskrárbil, frá 10 – 12 og 13 -15. Allir skátar fara í sund, annað hvort í fyrra eða seinna dagskrárbilinu, og taka síðan þátt í valdagskrá í hinu bilinu. Milli kl. 12 og 13 geta allir komið við í Skátaheimilinu Hyrnu og fengið sér akureyrska grillaða pylsu. Á göngunni í bæinn verður einnig póstaleikur þar sem leysa þarf ýmsar þrautir.
Á Norðurleiðinni fara skátarnir fyrr af stað, klukkan 9 um morguninn en verða komin til baka á sama tíma um klukkan 16. Skátarnir þurfa að taka með sér nesti fyrir daginn.
In Due North, we will enjoy being close to Akureyri. A variety of exciting programme activities will be available, and everyone should be able to find something they enjoy. The day is divided into two programme slots: 10:00-12:00 and 13:00-15:00. Everyone will go swimming during one of the slots, and during the other they can choose from a range of programme options. Between 12:00 and 13:00, hot dogs will be served at Hyrna Scout House. On the walk to town, you can also take part in a fun game where you will solve a variety of puzzles and challenges.
On this day the scouts need to leave a bit early or at around 9 in the morning but should arrive back at the usual time at 4 in the afternoon. Participants need to bring packed snacks for this long day.
Klifur / Bouldering
| Skelltu þér í klifurhúsið og lærðu nýja klifurtakta. |
| Practice your bouldering skills at the Akureyri Climbing gym. |
Listasafnið / Akureyri Art Museum
|
Skoðaðu spennandi sýningar á Listasafninu á Akureyri og fáðu innblástur til að skapa eitthvað nýtt. |
| Explore exciting exhibitions at the Akureyri Art Museum and get inspired to create something new. |
Minjasafnið / Akureyri Historical Museum
| Kíktu í heimsókn á Minjasafnið, þar getur þú ferðast aftur í tímann og séð hvernig fólk lifði á Akureyri og Eyjafirði áður fyrr – prófað búninga og skoðað gömul leikföng. |
| Visit the Akureyri Historical Museum and discover stories, objects, and local history from Akureyri and Eyjafjörður. |
Siglinganámskeið / Sailing
| Prófaðu siglingar á Pollinum og lærðu grunnatriðin í að stýra bát á öruggan og skemmtilegan hátt. |
| Try sailing on the fjord and learn the basics of handling a boat in a safe and fun way. |
Amtsbókasafnið / Akureyri Municipal Library
| Heimsæktu Amtsbókasafnið, skoðaðu safnið og taktu því rólega innan um bækur og sögur. |
| Visit the Akureyri Municipal Library, explore the library, and take it easy surrounded by books and stories. |
Frisbígolf / Frisbee Golf
| Skelltu þér í frisbígolf á Hamarskotstúni og reyndu að hitta körfurnar í sem fæstum köstum. |
| Try frisbee golf at Hamarskotstún and see if you can hit the baskets in as few throws as possible. |