Skjólið / Listening ear
Skjólið er athvarf og hvíldarstaður á skátamótum, fyrir börn, foringja og sjálfboðaliða sem þurfa á því að halda. Skjólið nýtist t.d. börnum og sjálfboðaliðum sem þurfa hvíld frá áreiti, slaka á og núllstilla taugakerfið. Á skátamótum eru skynsegin einstaklingar berskjaldaðri fyrir skynjunarofhleðslu en Skjólið getur gert gæfumuninn til þess að skátarnir geti haldið dvölinni áfram í stað þess að brenna út eða gefast upp og fara heim. Skjólið annast einnig listening ear á mótinu, fyrir börn og fullorðna. Þangað geta skátar leitað sem þurfa að ræða atvik, áhyggjur eða annað sem liggur þeim á hjarta.
Fararstjórar og foringjar geta einnig leitað til Skjólsins fyrir ráðgjöf sem varðar hegðunar- eða samskiptaárekstra á mótinu. Sambúð í viku er þroskandi fyrir hópa en getur einnig reynt á og allskonar komið upp í samskiptum. Þegar skátarnir eru þreyttir, eins og á til að gerast á skátamótum, magnast tilfinningarnar upp og þráðurinn styttist. Við leitum því að sjálfboðaliðum sem geta ráðlagt foringjum í fjölbreyttum og krefjandi félagslegum aðstæðum.